Já, vorið er á næsta leiti, eða svo segja almanakið og fuglarnir. Tjaldurinn hefur hátt í rekjunni, skógarþrösturinn þenur sig í trjánum og álftinni fjölgar í túnunum. Styttist í sauðburð og ýmisskonar vorverk.
Ræktunarsýning var haldin í reiðhöllinni á Flúðum þann 15. apríl. Fjöldi þátttakenda og áhorfenda.
Hér er dagskrá okkar framlags:
"Eins og segir í sýningarskrá er yfirskrift þessarar sýningar:
„Þau fóru fyrst á folaldasýningu.“
Hér verða kynnt unghross í byrjun tamningar sem öll eiga það sameiginlegt að hafa komið fram á folaldasýningum á vegum Hrossaræktarfélags Hrunamanna.
Það ber að hafa í huga að vegna ungs aldurs eru hrossin mislangt komin í gangsetningu og jafnvægi í reið. Vilji áhorfendur sýna þakklæti sitt, þá verði það gert að atriðinu loknu.
Það var vorið 2007 sem fyrsta folaldasýningin var haldin á vegum Hrossaræktarfélagsins, þá í Langholtskoti.
Hryssan Lygna frá Hrafnkelsstöðum 1, jörp fædd 2006, var meðal þátttakenda og stóð að lokum uppi sem sigurvegari. Hún er undan Dalvari frá Auðsholtshjáleigu og Rangá frá Kirkjubæ.
Lygna var tamin og sýnd til 1. verðlauna 5 vetra gömul í fyrra af Janusi Halldóri Eiríkssyni. Þar sem Lygna er nú fylfull, er hún í dag “með okkur“ á hvíta tjaldinu.
Ári seinna, 2008, er folaldasýningin haldin á Jaðri. Þangað var farið með hryssuna Svertu frá Hrafnkelsstöðum 1, fædd 2007, undan Krumma frá Blesastöðum 1A og Skyggnu frá Hrafnkelsstöðum 1.
Kusu áhorfendur hana álitlegasta folaldið á sýningunni.
Sverta er svartstjörnótt að verða 5 vetra, tamin í vetur af Bylgju Gauksdóttur og Elsu Mandal Hreggviðsdóttur sem er einnig knapi á Svertu hér í dag.
Þá er það árið 2009, sem fyrsta sýning af þessu tagi, er haldin hér í reiðhöllinni. Frá Hrafnkelsstöðum 1 tóku þátt tvö folöld, eitt af hvoru kyni.
Annarsvegar var það Stöng frá Hrafnkelsstöðum 1, móálótt fædd 2008, undan Stála frá Kjarri og Spöng frá Hrafnkelsstöðum 1.
Stöng varð í 3. sæti hjá dómurum, en kosin álitlegasta folaldið af áhorfendum.
Hún er núna að verða 4ra vetra og tamin í 3-4 mánuði af Janusi Eiríkssyni sem situr hana hér.
Hinsvegar var það Glitnir frá Hrafnkelsstöðum 1, jarpur fæddur 2008, undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og Blástjörnu frá Hrafnkelsstöðum 1.
Glitnir varð í öðru sæti á folaldasýningunni.
Hann er nú að verða 4ra vetra og er ógeltur. Taminn í 3-4 mánuði af Bylgju Gauksdóttur sem situr hann einnig í dag.
Um leið og Jóhanna og Haraldur þakka fyrir sig, óska þau Hrossaræktarfélagi Hrunamanna til hamingju með 100 ára starfið."
Okkur fannst sýningin takast vel og alltaf er gaman að sjá hvað aðrir í sveitinni eru með af ungum og efnilegum hrossum. Glænýja heimasíðu félagsins er að finna á þessari slóð: www.hrosshrun.weebly.com
og er margt fróðlegt þar að finna.
Myndir af sýningunni eru fyrir ofan (frá Sigga Sigmunds), en hér fyrir neðan er myndbandið af henni Lygnu sem var varpað með skjávarpa í atriðinu okkar, en Viðar Ingólfsson er á bak við þessa upptöku.
Takk fyrir að sýna hrossin okkar, Elsa, Bylgja og Janus, og Óli Andri fyrir alla aðstoð.