Jæja, jæja komin ágúst!
Í síðustu fréttaskrifum stefndi í sauðburð sem gekk stóráfallalaust allavega komu mörg lömb sem væntanlega auka á vanda offramleiðslu kjöts í landinu.
Heyskapur hófst 26.júní og honum lauk með háarslætti 31.ágúst. Mikil og góð hey. Sauðféð fór í afréttinn í byrjun júlí og verður smalað til byggða um miðjan september (réttardagur er 15.september).
Hryssurnar köstuðu hver af annarri en með töluverðu millibili frá þeirri fyrstu til þeirrar síðustu.
Það var hún Lygna sem rak lestina 31.júlí og færði okkur moldótta hryssu undan Draupni frá Stuðlum. Mikil gleði á bænum, en þetta var eina merfolaldið okkar þetta árið. Spönn kastaði jörpum hesti undan Gaumi sem verður síðan grár. Hún fór svo til Vita frá Kagaðarhóli. Lind kom með blesóttan hest undan Lukku-Láka og fer til hans aftur. Sytra kastaði jörpum hesti undan Sveini-Hervari, en henni verður ekki haldið oftar ( væntanlega felld í haust). Skyggna var geld en er fylfull núna með Sveini-Hervari. Vonandi kemur önnur Hrafna að vori.
Fjögur tryppi á fjórða vetur fara í frumtamningar í haust. Feður þeirra eru Fróði, Hágangur, Jarl og Huginn. Spennandi.
Á facebook - like síðunni okkar vorum við að setja inn tvö spennandi hross til sölu sem eru bæði fædd árið 2012. Vindótt meri undan Bláskjá frá Kjarri og Sýlu og jarpan hest undan Sveini Hervari og Sytru. Hér er linkur
á það:
https://www.facebook.com/hrafnkelsstadir1/posts/1922413891366613?notif_t=like¬if_id=1502966936342853