Folaldarakstur 2012 09/02/2012
Það er nú meira hvað tíminn æðir áfram. Daginn er sannarlega farið að lengja, það má merkja á birtunni í báða enda dagsins. Verst hvað hefur verið umhleypingasamt, því það tefur alla útivinnu. Inni er bjart og hlýtt, og kindur og hross éta eins og allir geta í sig látið. Kapparnir Helgi Gíslason og Janus komu einn laugardaginn í lok janúar og rökuðu 23 folöld auk þess að klippa hófa á þeim og stórum hluta af útistóðinu. Sannarlega kappar á ferð. Takk takk strákar. Margar fallegar línur komu í ljós er lubbinn fauk af folöldunum, og fór svo að tvær prinsessur frá Austurási fóru á folaldasýningu samdægursog komu báðar heim með "fyrstu verðlaun" (dómarakosnar og af áhorfendum). Til hamingju með það elsku Ragga og Haukur. Gaman að hafa þessar fegurðardísir undir þaki hér á bæ. Við Haraldur höfum svo verið að klippa það sem eftir var, og enn eru nokkur folöld ókomin. Á næstunni stendur svo til að líta á tamningatryppin okkar sem eru af bæ. Fréttir í upphafi árs 24/01/2012
Nýja árið hefur heilsað okkur með allnokkrum umhleypingum í veðrinu. Hér á bæ voru sjö hross járnuð í byrjun mánaðarins, og höfum við Maja hreyft þau eftir bestu getu. Tvö tryppi – Sverta og Glitnir, fóru í framhaldsnám til Bylgju og hennar fólks að Rauðalæk, Rödd fór aftur í Austurás og Stöng sömuleiðis til Janusar. Fóðrafolöldum fjölgar, og er svo komið að allt er að verða yfirfullt. Þeir félagar Helgi Gísla og Janus eru væntanlegir á laugardag, og hefst þá klippingin á ungviðinu. Reynum að taka myndir af þeim gjörningi til birtingar á síðunni. Fróðlegt verður að sjá hvað leynist undir lubbanum. Jólakveðja 2011 29/12/2011
Nóvemberblíða 20/11/2011
Ekkert lát er á nóvemberblíðunni, enda var sauðféð ekkert kuldalegt þegar rúið var í vikunni. En það er stundum votviðrasamt og gæti orðið til þess að hross fengju holdhnjúska. Við reynum að fylgjast með því hér á bæ, en höfum ekki orðið vör við neitt ennþá. Byrjað var að gefa folaldshryssunum heyrúllur í gær, en þær hafa hingað til verið á ábornu túni. Í mikilli bleytu er hætt við útvatnaðri beit, þó jörðin sé grænleit. Öll tryppin sem voru í hausttamningu eru nú komin heim. Við sóttum Stöng (Spangar og Stáladóttir) til Janusar, en hún fer vel af stað. Þær voru einnig sóttar þær Rödd (Tenórsdóttir og Ertu) og Hemra (Hróðursdóttir og Lindar) að Austurási. Þær voru sýndar okkur í reið af þeim Röggu og Agnesi Heklu, og fóru þær fallega hjá þeim. Glitnir 3ja vetra Gaumssonur (ógeltur) var sóttur sl. föstudag austur að Efri-Rauðalæk til Bylgju og Óla eftir ca. 3ja vikna tamningu. Hann var sýndur okkur í reið, en það gerði Elsa Hreggviðsdóttir Mandal sem er að temja hjá þeim. Er skemmst frá því að segja, að það tókst með miklum ágætum. Takk kærlega fyrir. Við viljum einnig senda kveðjur til eigenda nýkrýndra heiðursverðlaunahryssna. Innilega til hamingju. Réttir, sjötugsafmæli og hausttamningar :) 15/10/2011
Jæja gott fólk, það er október, og ekkert skrifað síðan í ágúst. Viðmiðið var nú samt að gera hverjum mánuði smá skil. Í september eru miklar annir hjá sauðfjárbændum, svo var og á þessum bæ. Farið var í afréttarsmölun 9. og 10. sept. og verið í viku, en réttardagurinn var föstudaginn 16. september. Þar sem húsmóðirin á bænum er svokallaður "trússari" ásamt því að elda mat í mannskapinn, þurfti heilmikinn undirbúning fyrir ferðina, svo sem innkaupa á vistum og fleiri. Þá var hafin sauðfjárslátrun á Selfossi, en þar sér fyrrnefnd kona um skipulagningu sláturfjár að húsinu. Svo varð húsbóndinn 70 ára þann 15. sept., og var þess minnst við réttarsúpuát og fleira góðgæti. Um 200 manns litu við í fjárhúsinu og þáðu veitingar. Kærar þakkir fyrir komuna þið öll! Hér á bæ eru einnig nokkuð mörg hross sem þarf að fylgjast með og sinna. Hryssurnar sem haldið var komu heim úr graðhestagirðingum, flestar fyljaðar, en þær sem ekki héldu voru annarsvegar Blástjarna okkar, en hún er orðin gömul og væntanlega hætt folaldseignum, og hinsvegar Sóldögg frá Breiðumörk hans Uli Reber sem einnig kom fyllaus. Búið er að setja þær hryssur sem ganga með folöldum á nýjan og óbitin haga, og eins og alltaf við slíkar breytingar þá græðast hryssurnar, en það merkjum við í miklum leik og kátínu í folöldunum. Tvær 4ra vetra hryssur fóru í framhaldstamningu til Bylgju og Óla á Rauðalæk, og svo fór einnig 3ja vetra ógeltur foli undan Gaumi og Blástjörnu til þeirra fyrir rúmri viku, þegar við sóttum aðra hryssuna. Frábær vinna hjá þessu elskulega pari. Þriggja vetra Stáladóttir og Spangar fór til Janusar. Og einnig tvær þriggja vetra í Austurás, önnur undan Tenór frá Túnsbergi og Ertu, hin undan Lind og Hróðri frá Refsstöðum. Ómetanlegt að eiga góða að. Gæðingamót og síðsumarsýning 24/08/2011
Hásumarfréttir 29/07/2011
Enn æðir tíminn áfram. Komin verslunarmannahelgi sem margir líta á sem ákveðin tímamót sumars og hausts. Allavega er farið að rökkva. Síðustu fréttaskrif voru í lok sauðburðar. Farið var svo með féð í afrétt um hálfum mánuði seinna en vanalega, eða 12.-15. júlí vegna lélegrar sprettu. En fyrri túnaslætti lauk hér 10. júlí, nokkuð seinna en oft áður. Straumur, sem sagt var frá í síðustu skrifum, stóð sig með ágætum á Landsmóti, hlaut 8,30 fyrir hæfileika, 7,98 byggingu og 8,17 í aðaleinkunn, og hlaut þar með níunda sætið í flokki 4v stóðhesta. Og við vorum að sjálfsögðu þrælmontin af öllu saman :-) Þær mæðgur Spöng og Gára köstuðu sitt hvorum rauða hestinum (undan Barða frá Laugarbökkum sem einnig gerði það gott á Landsmótinu), og fannst okkur þá komið nóg af hestfolöldum... En hún Lind bætti fyrir hinar og kastaði sótrauðblesóttri hryssu [sjá mynd hér fyrir ofan] :-) Snót frá Tungu kom með jarpa hryssu undan Gaumi, og síðust kastaði Sóldögg rauðstjörnóttri hryssu undan Aroni. Stóðhestar sem notaðir eru í sumar eru Sveinn-Hervar, Herjólfur, Arður, Álfur og Bláskjár. Aðkomuhryssurnar fara til Hrímnis frá Ósi, Kráks, Óms og Lukku-Láka. Í sumar hefur Maja rekið tamningastöð og annar vart eftirspurn. Við nöfnurnar reynum svo að hreyfa heimahrossin, ásamt Haraldi yngri og Hjalta Snæ sem eru farnir að ríða Fölva. Hann Straumur frá Hrafnkelsstöðum 1, sem er úr okkar ræktun undan Rangá okkar og Hróðri frá Refstöðum fór í fínan dóm í vor, 4ra vetra gamall. Hann hlaut 7.98 fyrir sköpulag, 8.13 fyrir hæfileika - 8.07 í aðaleinkunn, og er þar með kominn með þátttökurétt á Landsmót Hestamanna 2011. Hann er með 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja & geð, fegurð í reið og fet, og sömuleiðis 8,5 fyrir háls & herðar og samræmi. Það eru þau Ragga og Haukur í Austurási sem eiga Straum, en þau keyptu hann hjá okkur veturgamlan. Við erum mjög ánægð með þennan fína árangur hjá hestinum og hlökkum til að sjá hann á Landsmótinu í sumar :) Sauðburði lokið og folöld að fæðast 04/06/2011
Jæja þá er maímánuður liðinn og enginn frétt skrifuð. Það var svo mikið að gera í sauðburði, en honum er að mestu lokið núna - ein eftir. Griðarleg frjósemi, 34 þrilembur og 1 fjórlemb, helmingurinn af öræfagemsunum átti svo tvö lömb. Lítil afföll urðu á sauðburði, en svo er mánuður til afréttarflutninga og sjálfsagt misferst eitthvað þangað til. Lygna okkar var sýnd í kynbótadómi á Selfossi, náði tæpum 1. verðl. 7,8 fyrir byggingu, 8,08 fyrir hæfileika og 7,97 út. Átti svo að reyna við áttuna, en þá þyrfti hún endilega að meiðast í baki, svo þessi áform verða að bíða betri tíma. Í gær voru geltir hér 10 folar frá hinum og þessum. Fóðrafolöldin eru óðum að hverfa til síns heima, og er þetta árlegt loka verk. Bláskeggur er seldur og farinn til nýrra eiganda í Þýskalandi. Á næstunni fara svo tvö tryppi 2ja vetra undan honum sömu leið, þau Lilja og Blástakkur. Fjögur folöld eru fædd hér á bæ í vor. Tvö af þeim eru okkur fædd en því miður drapst folaldið hennar Skyggnu í fæðingu, en það var svartur hestur undan Sveini-Hervari :-( Erta kastaði fallegum rauðum hesti undan Mídasi frá Kaldbak. Sytra Gígjarsdóttir kom með jarpstjörnóttan hest undan Kráki, en Magnús Trausti á Blesastöðum hélt hryssunni í fyrra og á folaldið. Hörpudís - sameign Janusar og Helga Gísla - kastaði jarpri hryssu undan Orra frá Þúfu, algjör happafengur hjá Janusi. Næstar til folaldseigna verða svo Snót frá Tungu þeirra feðga Sigurðar Adolfs og Sindra, það fyl er undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu; og svo Gára og Lind frá okkur. Gára fór undir Barða frá Laugarbökkum og Lind undir Kjarna frá Þjóðólfshaga. Síðastar verða svo Spöng héðan af bæ líka undan Barða, og Sóldögg frá Breiðumörk hans Uli Reber undan Aroni. Ekki alveg ákveðið undir hvaða hesta hryssurnar fara í ár, en allavega munum við nota Svein-Hervar eins og hægt er, en hann verður hér í deildinni í allt sumar :-) Gleðilegt sumar. 22/04/2011
Þessa dagana miðast allt við sauðburð, en hann byrjar upp úr næstu mánaðarmótum. Búið er að vigta ærnar og sprauta með garnapestarbólefni og seleni. Vélageymslan tæmd og útbúin aðstaða þar fyrir lambfé. Þá verður hlöðunni breytt í sama tilgangi. Folöldin fá nú orðið að fara út úr hlöðunni til viðrunar, og rassakastast um hlaðið. Nokkrir af eigundunum hafa komið upp á síðkastið, til að vega og meta gæðingsefnin sín. Gaman að sjá hvað margur einstaklingurinn kemur á óvart í útliti og hreyfingum. Við hjónakornin fórum að líta á Lygnu Dalvarsdóttir hjá Janusi. Það er skemmst frá því að segja að við vorum verulega ánægð með eignina. Þá hafa Gunnhildur og Helgi Gísla. þjálfað Bláskegg af kappi, og allar líkur á að hann sé að seljast. Takk fyrir allt þetta, elsku krakkarnir "okkar". Þessi hjálp er ómetanleg fyrir fólk sem er að reskjast. Þá á Austurásfólkið mikið í öllu þessu. Ekki má gleyma Maju minni, en Hrímfaxi Dalvarssonur hefur verið hjá henni í Reykjavík í vetur, orðinn stællegur og flottur. Kærar sumarkveðjur til allra. |







































