Menu:

Hásumarfréttir 29/07/2011
 
Enn æðir tíminn áfram. Komin verslunarmannahelgi sem margir líta á sem ákveðin tímamót sumars og hausts. Allavega er farið að rökkva.
Síðustu fréttaskrif voru í lok sauðburðar. Farið var svo með féð í afrétt um hálfum mánuði seinna en vanalega, eða 12.-15. júlí vegna lélegrar sprettu.
En fyrri túnaslætti lauk hér 10. júlí, nokkuð seinna en oft áður.

Straumur, sem sagt var frá í síðustu skrifum, stóð sig með ágætum á Landsmóti, hlaut 8,30 fyrir hæfileika, 7,98 byggingu og 8,17 í aðaleinkunn, og hlaut þar með níunda sætið í flokki 4v stóðhesta. Og við vorum að sjálfsögðu þrælmontin af öllu saman :-) 

Þær mæðgur Spöng og Gára köstuðu sitt hvorum rauða hestinum (undan Barða frá Laugarbökkum sem einnig gerði það gott á Landsmótinu), og fannst okkur þá komið nóg af hestfolöldum... En hún Lind bætti fyrir hinar og kastaði sótrauðblesóttri hryssu [sjá mynd hér fyrir ofan] :-)
Snót frá Tungu kom með jarpa hryssu undan Gaumi, og síðust kastaði Sóldögg rauðstjörnóttri hryssu undan Aroni.

Stóðhestar sem notaðir eru í sumar eru
Sveinn-Hervar, Herjólfur, Arður, Álfur og Bláskjár. Aðkomuhryssurnar fara til Hrímnis frá Ósi, Kráks, Óms og Lukku-Láka.

Í sumar hefur Maja rekið tamningastöð og annar vart eftirspurn. Við nöfnurnar reynum svo að hreyfa heimahrossin, ásamt Haraldi yngri og Hjalta Snæ sem eru farnir að ríða Fölva. 

 
 

Hann Straumur frá Hrafnkelsstöðum 1, sem er úr okkar ræktun undan Rangá okkar og Hróðri frá Refstöðum fór í fínan dóm í vor, 4ra vetra gamall.

Hann hlaut 7.98 fyrir sköpulag, 8.13 fyrir hæfileika - 8.07 í aðaleinkunn, og er þar með kominn með þátttökurétt á Landsmót Hestamanna 2011.
Hann er með 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja & geð, fegurð í reið og fet, og sömuleiðis 8,5 fyrir háls & herðar og samræmi.

Það eru þau Ragga og Haukur í Austurási sem eiga Straum, en þau keyptu hann hjá okkur veturgamlan.
Við erum mjög ánægð með þennan fína árangur hjá hestinum og hlökkum til að sjá hann á Landsmótinu í sumar :)

 
 
Jæja þá er maímánuður liðinn og enginn frétt skrifuð. Það var svo mikið að gera í sauðburði, en honum er að mestu lokið núna - ein eftir. Griðarleg frjósemi, 34 þrilembur og 1 fjórlemb, helmingurinn af öræfagemsunum átti svo tvö lömb.
Lítil afföll urðu á sauðburði, en svo er mánuður til afréttarflutninga og sjálfsagt misferst eitthvað þangað til.

Lygna okkar var sýnd í kynbótadómi á Selfossi, náði tæpum 1. verðl. 7,8 fyrir byggingu, 8,08 fyrir hæfileika og 7,97 út. Átti svo að reyna við áttuna, en þá þyrfti hún endilega að meiðast í baki, svo þessi áform verða að bíða betri tíma.

Í gær voru geltir hér 10 folar frá hinum og þessum. Fóðrafolöldin eru óðum að hverfa til síns heima, og er þetta árlegt loka verk.

Bláskeggur er seldur og farinn til nýrra eiganda í Þýskalandi. Á næstunni fara svo tvö tryppi 2ja vetra undan honum sömu leið, þau Lilja og Blástakkur.

Fjögur folöld eru fædd hér á bæ í vor. Tvö af þeim eru okkur fædd en því miður drapst folaldið hennar Skyggnu í fæðingu, en það var svartur hestur undan Sveini-Hervari :-(
Erta kastaði fallegum rauðum hesti undan Mídasi frá Kaldbak.
Sytra Gígjarsdóttir kom með jarpstjörnóttan hest undan Kráki, en Magnús Trausti á Blesastöðum hélt hryssunni í fyrra og á folaldið.
Hörpudís - sameign Janusar og Helga Gísla - kastaði jarpri hryssu undan Orra frá Þúfu, algjör happafengur hjá Janusi.

Næstar til folaldseigna verða svo Snót frá Tungu þeirra feðga Sigurðar Adolfs og Sindra, það fyl er undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu; og svo Gára og Lind frá okkur. Gára fór undir Barða frá Laugarbökkum og Lind undir Kjarna frá Þjóðólfshaga. Síðastar verða svo Spöng héðan af bæ líka undan Barða, og Sóldögg frá Breiðumörk hans Uli Reber undan Aroni.

Ekki alveg ákveðið undir hvaða hesta hryssurnar fara í ár, en allavega munum við nota Svein-Hervar eins og hægt er, en hann verður hér í deildinni í allt sumar :-)

 
 
Þessa  dagana miðast allt við sauðburð, en hann byrjar upp úr næstu mánaðarmótum. Búið er að vigta ærnar og sprauta með garnapestarbólefni og seleni. Vélageymslan tæmd og útbúin aðstaða þar fyrir lambfé. Þá verður hlöðunni breytt í sama tilgangi. Folöldin fá nú orðið að fara út úr hlöðunni til viðrunar, og rassakastast um hlaðið. Nokkrir af eigundunum hafa komið upp á síðkastið, til að vega og meta gæðingsefnin sín. Gaman að sjá hvað margur einstaklingurinn kemur á óvart í útliti og hreyfingum.

Við hjónakornin fórum að líta á Lygnu Dalvarsdóttir hjá Janusi. Það er skemmst frá því að segja að við vorum verulega ánægð með eignina.
Þá hafa Gunnhildur og Helgi Gísla. þjálfað Bláskegg af kappi, og allar líkur á að hann sé að seljast.
Takk fyrir allt þetta, elsku krakkarnir "okkar". Þessi hjálp er ómetanleg fyrir fólk sem er að reskjast. Þá á Austurásfólkið mikið í öllu þessu. Ekki má gleyma Maju minni, en Hrímfaxi Dalvarssonur hefur verið hjá henni í Reykjavík í vetur, orðinn stællegur og flottur.

Kærar sumarkveðjur til allra.

 
Febrúar-mars 07/03/2011
 

Það er kominn mars.  Ótrúlegt hvað tíminn æðir áfram.  Undanfarið hefur veðrið ekki alltaf verið skemmtilegt til útreiða, og ef það hefur verið í lagi, þá hleðst í hóf.  En þetta eru nú bara vandræði, sem fylgja gamla laginu -engin reiðhöll- 

Bláskeggur, sá vindótti, fór til Reykjavíkur um daginn, til að kynnast borgarhestamenningunni.  Helgi Gísla og Gunnhildur eru að dusta rykið af honum. 
Þá er Lygna Dalvarsdóttir farin til Janusar. 

En það er fyllt í plássin jafnóðum hér heima.  Urður Hilmisdóttir er komin á járn, og Haraldur farin að þjálfa.  Dalvör "litla" Dalvarsdóttir var járnuð um helgina, og á nú að halda áfram tamningu á henni.  N.k. miðvikudag og fimmtudag verður snoðið rúið af fénu.  Folöldin fóðrast vel og stækka mikið.  Mikið fjör í hlöðunni á viðrunardögum.



 
 

Klukkan 8 í gærmorgun mættu tveir galvaskir, þeir Helgi Gísla og Janus, til þess að klippa folöldin. Fjöldin allur fékk snyrtingu bæði á skrokk og hófum.
Áður höfðum við gömlu klippt nokkur, svo nú eru bara eftir 4 stk. sem við reynum að klára. Allt gekk þetta vel, eins og þeirra félaga var von og vísa.
Takk takk fyrir hjálpina, elsku strákarnir.

Við höfum ákveðið að bjóða Krummatá okkar til sölu, en það má skoða hana nánar undir "Hross til sölu" hér til vinstri.
Eins eru hestfolöldin okkar frá því í sumar til sölu, þeir
Vörður undan Vökli frá Árbæ og Ertu;
Arfur undan Kvisti frá Skagaströnd og Gáru;
og Bláfeldur undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Sýlu.
Myndir af þessum hestum eru að finna undir "Folöld 2010" hér vinstramegin.

 
 
Það gleður alltaf þegar ánægðir kaupendur senda mynd og falleg orð. 
Seytill okkar, undan Rangá og Þyrni, var seldur til Þýskalands og sendu núverandi eigendur okkur þessar myndir af honum. 

 
2011 04/01/2011
 
Árið 2011 gengið í garð með öllum sínum vonum og væntingum. Hér á bæ fjölgar fóðrafolöldum og þrjú systkini - Dalvarsbörn - á 5. vetra komin á járn. Maja fer með Hrímfaxa með sér til Reykjavíkur og kynnir hann fyrir borgarmenningunni. Hanna reynir svo að halda hinum við.

Nú er jólasælan að lokum komin og allt fer í fastar skorður. Meira að segja hrútarnir voru flestir teknir frá sínum dömum í gær.
Svona er lífið.  

 
 
Rein okkar er komin til Svíþjóðar. Við rákumst á þessa mynd á hestaleit.is
Rein frá Hrafnkelsstöðum 1. Við rákumst á þessa mynd af henni Rein okkar sem er komin til Svíþjóðar.

Kæru vinir
Óskum ykkur gleðilegra jóla með þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.

Sjáumst kát og hress á nýju ári.

Bestu kveðjur,
Jóhanna og Haraldur

 
Rúningi lokið 14/11/2010
 

Núna eru ærnar og allt féð komið inn, og búið að rýja.

Um síðustu helgi sóttum við Svertu og Krummatá í Austurási, og vorum mjög ánægð með tamninguna hjá Óla.

Skoðið myndirnar og myndatexta með því að smella á þær hér fyrir ofan.