Menu:

 
Það er nú meira hvað tíminn æðir áfram. Daginn er sannarlega farið að lengja, það má merkja á birtunni í báða enda dagsins. Verst hvað hefur verið umhleypingasamt, því það tefur alla útivinnu.


Inni er bjart og hlýtt, og kindur og hross éta eins og allir geta í sig látið. Kapparnir Helgi Gíslason og Janus komu einn laugardaginn í lok janúar og rökuðu 23 folöld auk þess að klippa hófa á þeim og stórum hluta af útistóðinu. Sannarlega kappar á ferð. Takk takk strákar.


Margar fallegar línur komu í ljós er lubbinn fauk af folöldunum, og fór svo að tvær prinsessur frá Austurási fóru á folaldasýningu samdægursog komu báðar heim með "fyrstu verðlaun" (dómarakosnar og af áhorfendum). Til hamingju með það elsku Ragga og Haukur. Gaman að hafa þessar fegurðardísir undir þaki  hér á bæ.

Við Haraldur höfum svo verið að klippa það sem eftir var, og enn eru nokkur folöld ókomin.
Á næstunni stendur svo til að líta á tamningatryppin okkar sem eru af bæ.
 


Comments


Comments are closed.