Menu:

 
Nýja árið hefur heilsað okkur með allnokkrum umhleypingum í veðrinu.  Hér á bæ voru sjö hross járnuð í byrjun mánaðarins, og höfum við Maja hreyft þau eftir bestu getu. 

Tvö tryppi – Sverta og Glitnir, fóru í framhaldsnám til Bylgju og hennar fólks að Rauðalæk, Rödd fór aftur í Austurás og Stöng sömuleiðis til Janusar.  

Fóðrafolöldum fjölgar, og er svo komið að allt er að verða yfirfullt.  Þeir félagar Helgi Gísla og Janus eru væntanlegir á laugardag, og hefst þá klippingin á ungviðinu.  Reynum að taka myndir af þeim gjörningi til birtingar á síðunni.  Fróðlegt verður að sjá hvað leynist undir lubbanum. 
 


Comments


Comments are closed.